COVCELL

covcell_front.jpg
About Covcell in Icelandic Print Email
COVCELL - Cohort-Oriented Virtual Campus for Effective Language Learning - hóf göngu sína árið 2005. Markmiðið með því er að koma til móts við þarfir fjarnema í tungumálanámi fyrir samskipti sín á milli en vitað er að það kemur fjarnemum til góða að hitta félaga sína öðru hverju til að ræða sameiginleg vandamál og vinna saman að lausn verkefna. Fjarlægðirnar eru gjarna miklar og efnin oft lítil og hefur vinnan innan COVCELL-verkefnisins miðað að því að þróa aðferðir til að gera slík samskipti rafræn þannig að nemendur geti átt þátt í rafrænu samskiptaneti, eða nokkurs konar „sýndarskóla“. Jafnframt gerir COVCELL-verkefnið kennurum færi á að hafa samskipti við einstaka nema eða marga saman. Unnið hefur verið að því að þróa möguleika á vinnuhópum, sjálfsmati og mati kennara á nemendum og leitað leiða til að kennari geti leiðbeint nemendum og brugðist skjótt við ef upp koma vandamál.
 
Við mótun verkefnisins var ákveðið að finna og þróa áfram kennslukerfi sem þegar væri til staðar, en fyrir valinu varð Moodle, námskerfi sem ætlað er kennslu í hvaða grein sem er. Moodle hefur ýmsa kosti, í senn öflugt en auðvelt í notkun, þekkt um allan heim og í stöðugri þróun. En jafnframt er það ókeypis.


Matthew Whelpton, dósent í málvísindum við enskuskor Hugvísindadeildar Háskóla Íslands, stýrir verkefninu. Aðalsamstarfsaðili hans innan Háskóla Íslands er Birna Arnbjörnsdóttir, dósent og verkefnisstjóri vefnámskeiðsins Icelandic Online. Aðrir þátttakendur í verkefninu eru frá Humboldt-háskóla í Berlín, Ca' Foscari- háskóla í Feneyjum, Háskólanum í Baskalandi í San Sebastian og íslenska tölvufyrirtækinu ODG ehf.

COSELLO
Dagana 28. og 29. september stendur COVCELL-verkefnið fyrir ráðstefnu við
Háskóla Íslands.

COSELLO-ráðstefnan - Conference on Open Source in Education and Language Learning Online - markar lok rannsóknarverkefnisins sem unnið var með styrk frá Mínervu-sjóði innan Sókretes-áætlunar Evrópusambandsins.

Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu og Lögbergi. Sjá nánar...